Slökunarferðalag með hand- og fótsnyrtingu.
26.800 kr.
Handsnyrting þar sem neglur og naglabönd eru snyrt. Kornakrem borið á sem hressir húðina og undirbýr hana undir gott handanudd með Guinot nærandi handáburði. Þú velur síðan naglalakk í þínum uppáhaldslit.
Á meðan hendurnar eru snyrtar eru fæturnir þvegnir með heitum þvottastykkjum. Neglur eru síðan snyrtar og klipptar. Naglabönd fjarlægð ásamt harðri húð, kornakrem borið á sem undirbýr húðina fyrir gott fótanudd. Naglalakk að eigin vali í þínum uppáhaldslit.
Á meðan naglalakkið þornar er létt höfuðnudd sem er róandi og slakandi í senn.
Þetta er algjör slökun og tekur einungis 75 mín.