Draumurinn
18.100 kr.
Nýjasta andlitsmeðferð snyrtistofunnar hefst á notalegu baknuddi með heitum steinum til að losa um þreytu og stífleika í baki. Snyrtifræðingurinn lagar andlitsmeðferðina að þinni húðgerð allt eftir því hvers hún þarfnast. Í þessari meðferð er Shiatsu punktanudd fyrir þreytt augu ásamt slakandi nuddi á andlit, herðar og höfuð. Að lokum er endað á djúpvirkum ilmolíumaska.
Þessi meðhöndlun er upplifun fyrir húð og huga. 1. klst. 30 mín.